Staða markaðsskuldabréfa og víxla nam 3.663,4 ma.kr. í lok janúar 2026 og hækkaði um 60,3 ma. kr. í mánuðinum. Staða ríkisbréfa hækkaði um 26,8 ma.kr. og ríkisvíxlar hækkuðu um 13,4 ma.kr. Hlutdeildarskírteini sjóða námu 1.246,2 ma.kr. og markaðsvirði skráðra hlutabréfa í Kauphöll Íslands nam 3.540,2 ma.kr í lok janúar 2026.
Sjá nánari sundurliðun á stöðu markaðsverðbréfa í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is