Staða markaðsskuldabréfa nam 3.470,2 ma.kr. í lok maí 2024 og hækkaði um 69,7 ma. kr. í mánuðinum. Staða ríkisbréfa hækkaði um 16,0 ma.kr. og ríkisvíxlar hækkuðu um 17,6 ma.kr. Bankabréf og -víxlar hækkuðu samtals um 4,3 ma.kr. Hlutdeildarskírteini sjóða námu 1.042,4 ma.kr. og markaðsvirði skráðra hlutabréfa á aðallista Kauphallar Íslands nam 2.718,8 ma.kr í lok maí 2024.
Sjá nánari sundurliðun á stöðu markaðsverðbréfa í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is