Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur lokið máli sem varðaði brot einstaklings gegn 15. gr., sbr. a-lið 1. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sem hefur lagagildi hér á landi samkvæmt lögum nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum.
Málið laut að viðskiptum og viðskiptafyrirmælum einstaklingsins vegna hlutabréfa í tveimur skráðum félögum á tímabilinu 22. febrúar til 5. september 2023. Háttsemin fólst einkum í smáviðskiptum við eða nálægt opnun eða lokun markaðar, viðskiptum þar sem einstaklingurinn stjórnaði í reynd báðum hliðum þeirra og framlagningu villandi kauptilboða.
Niðurstaða fjármálaeftirlitsins var að háttsemin hefði verið endurtekin, markviss og án raunverulegs viðskiptalegs tilgangs. Hún hefði verið líkleg til að gefa markaðnum ranga eða villandi mynd af framboði, eftirspurn eða verði hlutabréfanna eða tryggja óeðlilegt eða tilbúið verð þeirra. Einstaklingurinn hefði því tekið þátt, og gert tilraun til að taka þátt, í markaðsmisnotkun.
Á fundi fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands 4. júní 2026 var ákveðið að gera einstaklingnum stjórnvaldssekt, en með hliðsjón af fjárhagsstöðu viðkomandi var sektin ákveðin 100.000 kr.
Samkvæmt gagnsæisstefnu Seðlabanka Íslands eru niðurstöður mála birtar í heild eða í formi útdráttar. Nöfn einstaklinga eru að jafnaði ekki birt nema þau hafi sérstaka þýðingu og hagsmunir fjármálamarkaðarins séu taldir vega þyngra en hagsmunir viðkomandi af nafnleynd. Ákvörðun í máli þessu er birt í formi útdráttar sem er hér meðfylgjandi.