Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 12/2025 dagsettri 19. desember sl. þar sem að meginvextir bankans eru óbreyttir síðan þá.
Dráttarvextir eru að sama skapi óbreyttir og verða áfram 15,00% fyrir tímabilið 1. – 28. febrúar 2026.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 28. febrúar 2026:
- Vextir óverðtryggðra útlána 8,20%
- Vextir verðtryggðra útlána 4,75%
- Vextir af skaðabótakröfum 5,47%