Fara beint í Meginmál

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 02/2026 19. febrúar 2026

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 01/2026 dagsettri 20. janúar sl. þar sem að meginvextir bankans eru óbreyttir síðan þá.

Dráttarvextir eru að sama skapi óbreyttir og verða áfram 15,00% fyrir tímabilið 1. – 31. mars 2026.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. mars 2026:

  • Vextir óverðtryggðra útlána 8,20%
  • Vextir verðtryggðra útlána 4,75%
  • Vextir af skaðabótakröfum 5,47%