Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta er breyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 02/2026 dagsettri 19. febrúar sl. þar sem að meginvextir bankans hafa hækkað um 0,25 prósentur síðan þá. Dráttarvextir breytast sem því nemur og verða 15,25% fyrir tímabilið 1. – 30. apríl 2026.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. apríl 2026:
Vextir óverðtryggðra útlána 8,20%
Vextir verðtryggðra útlána 4,75%
Vextir af skaðabótakröfum 5,47%