Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 03/2026 dagsettri 19. mars sl. þar sem að meginvextir bankans eru óbreyttir síðan þá. Dráttarvextir eru að sama skapi óbreyttir eða 15,25% fyrir tímabilið 1. – 31. maí 2026.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. maí 2026:
• Vextir óverðtryggðra útlána 8,35% (hækka úr 8,20%)
• Vextir verðtryggðra útlána 4,50% (lækka úr 4,75%)
• Vextir af skaðabótakröfum 5,57% (hækka úr 5,47%)