Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta er breyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 04/2026 dagsettri 20. apríl sl. þar sem að meginvextir bankans hafa hækkað um 0,25 prósentur síðan þá. Dráttarvextir breytast sem því nemur og verða 15,50% fyrir tímabilið 1. – 30. júní 2026.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. júní 2026:
- Vextir óverðtryggðra útlána 8,20% (lækka úr 8,35%)
- Vextir verðtryggðra útlána 4,50%
- Vextir af skaðabótakröfum 5,47% (hækka úr 5,57%)