Fara beint í Meginmál

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 06/2026 19. júní 2026

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 05/2026 dagsettri 20. maí sl. þar sem að meginvextir bankans eru óbreyttir síðan þá. Dráttarvextir eru því óbreyttir og verða 15,50% fyrir tímabilið 1. – 31. júlí 2026.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. júlí 2026:

  • Vextir óverðtryggðra útlána 8,35% (hækka úr 8,20%)
  • Vextir verðtryggðra útlána 4,35% (lækka úr 4,50%)
  • Vextir af skaðabótakröfum 5,57% (hækka úr 5,47%)