Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 06/2026 dagsettri 19. júní sl. þar sem að meginvextir bankans eru óbreyttir síðan þá.
Dráttarvextir eru því að sama skapi óbreyttir og verða áfram 15,50% fyrir tímabilið 1. - 31. ágúst 2026.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. - 31. ágúst 2026:
- Vextir óverðtryggðra útlána 8,35% (óbreyttir)
- Vextir verðtryggðra útlána 4,35% (óbreyttir)
- Vextir af skaðabótakröfum 5,57% (óbreyttir)