Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 07/2024 dagsettri 19. júlí sl. þar sem að engar breytingar hafa átt sér stað á meginvöxtum bankans eftir það.
Dráttarvextir eru að sama skapi óbreyttir og verða því áfram 17,00% fyrir tímabilið 1. - 30. september 2024.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. september 2024:
- Vextir óverðtryggðra útlána 8,95% (óbreyttir)
- Vextir verðtryggðra útlána 3,75% (óbreyttir)
- Vextir af skaðabótakröfum 5,97% (óbreyttir)