Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 09/2026, dagsettri 21. september sl., þar sem að meginvextir bankans eru óbreyttir síðan þá.
Dráttarvextir eru því að sama skapi óbreyttir og verða 15,75% fyrir tímabilið 1. – 30. nóvember 2026.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. nóvember 2026:
- Vextir óverðtryggðra útlána 8,35% (óbreyttir)
- Vextir verðtryggðra útlána 4,45% (óbreyttir)
- Vextir af skaðabótakröfum 5,57% (óbreyttir)