Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 10/2024 dags 18. október sl. þar sem að meginvextir bankans hafa lækkað um 0,50 prósentur síðan þá.
Dráttarvextir lækka því að sama skapi og verða 16,25% fyrir tímabilið 1. - 31. desember 2024.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir eru óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. desember 2024:
- Vextir óverðtryggðra útlána 8,75%
- Vextir verðtryggðra útlána 4,00%
- Vextir af skaðabótakröfum 5,83%