Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 10/2026, dagsettri 20. okt. sl., þar sem meginvextir bankans eru óbreyttir.
Dráttarvextir eru því að sama skapi óbreyttir og verða 15,75% fyrir tímabilið 1. – 31. desember 2026.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. desember 2026:
• Vextir óverðtryggðra útlána 8,35% (óbreyttir)
• Vextir verðtryggðra útlána 4,45% (óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum 5,57% (óbreyttir)