Fara beint í Meginmál

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 12/2024

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 11/2024 dagsettri 21. nóvember sl. þar sem að meginvextir bankans eru óbreyttir síðan þá.

Dráttarvextir eru því að sama skapi óbreyttir og verða áfram 16,25% fyrir tímabilið 1. - 31. janúar 2025.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. janúar 2025:

  • Vextir óverðtryggðra útlána 8,60% (lækka úr 8,75%)
  • Vextir verðtryggðra útlána 4,00% (óbreyttir)
  • Vextir af skaðabótakröfum 5,73% (lækka úr 5,83%)