Fara beint í Meginmál

Til­kynn­ing um drá­tt­a­rvexti og vexti af pen­inga­krö­f­um nr. 12/2025 19. desember 2025

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 11/2025 dagsettri 20. nóvember sl. þar sem að meginvextir bankans eru óbreyttir síðan þá. 
Dráttarvextir eru að sama skapi óbreyttir og verða áfram 15,00% fyrir tímabilið 1. – 31. janúar 2026.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. janúar 2026:

• Vextir óverðtryggðra útlána 8,20% (lækka úr 8,45%)
• Vextir verðtryggðra útlána 4,75% (lækka úr 4,85%)
• Vextir af skaðabótakröfum 5,47% (lækka úr 5,63%)