Heildareignir vátryggingafélaga námu 347,6 ma.kr. í lok desember. Af heildareignum námu eignir skaðatryggingafélaga 326,7 ma.kr. og eignir líftryggingafélaga 20,9 ma.kr.
Innlendar eignir vátryggingafélaga námu 282,4 ma.kr. og erlendar eignir námu 65,2 ma.kr.
Innlendar skuldir félaganna námu 156,9 ma.kr. en þar af námu vátrygginga- og lífeyrisskuldir 137,8 ma.kr. Erlendar skuldir vátryggingafélaga námu 285 m.kr.
Í lok desember nam eigið fé tryggingafélaga 190,4 ma.kr. og hækkaði um 983 m.kr. á milli mánaða.
Vegna innleiðingar á IFRS 17 reikningsskilastaðli í uppgjöri tryggingafélaga er brot í tímaröðum um iðgjaldakröfur og iðgjaldaskuld í janúar 2023.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi tryggingafélaga í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is