Heildareignir vátryggingafélaga námu 359,8 ma.kr. í lok febrúar. Af heildareignum námu eignir skaðatryggingafélaga 338,4 ma.kr. og eignir líftryggingafélaga 21,5 ma.kr.
Innlendar eignir vátryggingafélaga námu 293,4 ma.kr. og erlendar eignir námu 66,4 ma.kr.
Innlendar skuldir félaganna námu 164,4 ma.kr. en þar af námu vátrygginga- og lífeyrisskuldir 141,7 ma.kr. Erlendar skuldir vátryggingafélaga námu 579 m.kr.
Í lok febrúar nam eigið fé tryggingafélaga 194,9 ma.kr. og hækkaði um 437 m.kr. á milli mánaða.
Vegna innleiðingar á IFRS 17 reikningsskilastaðli í uppgjöri tryggingafélaga er brot í tímaröðum um iðgjaldakröfur og iðgjaldaskuld í janúar 2023.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi tryggingafélaga í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is