Heildareignir vátryggingafélaga námu 361,9 ma.kr. í lok janúar. Af heildareignum námu eignir skaðatryggingafélaga 340,3 ma.kr. og eignir líftryggingafélaga 21,6 ma.kr.
Innlendar eignir vátryggingafélaga námu 294,3 ma.kr. og erlendar eignir námu 67,6 ma.kr.
Innlendar skuldir félaganna námu 166,7 ma.kr. en þar af námu vátrygginga- og lífeyrisskuldir 143,5 ma.kr. Erlendar skuldir vátryggingafélaga námu 745 m.kr.
Í lok janúar nam eigið fé tryggingafélaga 194,4 ma.kr. og hækkaði um 4,0 ma.kr. á milli mánaða.
Vegna innleiðingar á IFRS 17 reikningsskilastaðli í uppgjöri tryggingafélaga er brot í tímaröðum um iðgjaldakröfur og iðgjaldaskuld í janúar 2023.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi tryggingafélaga í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is