Heildareignir vátryggingafélaga námu 339,4 ma.kr. í lok maí. Af heildareignum námu eignir skaðatryggingafélaga 319 ma.kr. og eignir líftryggingafélaga 20,4 ma.kr.
Innlendar eignir vátryggingafélaga námu 274,1 ma.kr. og erlendar eignir námu 65,3 ma.kr.
Innlendar skuldir félaganna námu 158,5 ma.kr. en þar af námu vátrygginga- og lífeyrisskuldir 142,6 ma.kr. Erlendar skuldir vátryggingafélaga námu 393 m.kr.
Í lok maí nam eigið fé tryggingafélaga 180,5 ma.kr. og hækkaði um 4,8 ma.kr. á milli mánaða.
Vegna innleiðingar á IFRS 17 reikningsskilastaðli í uppgjöri tryggingafélaga er brot í tímaröðum um iðgjaldakröfur og iðgjaldaskuld í janúar 2023.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi tryggingafélaga í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is