Fara beint í Meginmál

Tryggingafélög í mars 2024

Heildareignir vátryggingafélaga námu 337,3 ma.kr. í lok mars. Af heildareignum námu eignir skaðatryggingafélaga tæplega 317,6 ma.kr. og eignir líftryggingafélaga 19,7 ma.kr.

Innlendar eignir vátryggingafélaga námu 272,2 ma.kr. og erlendar eignir námu 65,2 ma.kr.

Innlendar skuldir félaganna námu 164,5 ma.kr. en þar af námu vátrygginga- og lífeyrisskuldir 146,3 ma.kr. Erlendar skuldir vátryggingafélaga námu 417 m.kr.

Í lok mars nam eigið fé tryggingafélaga 172,4 ma.kr. og lækkaði um 6,3 ma.kr. á milli mánaða.

Vegna innleiðingar á IFRS 17 reikningsskilastaðli í uppgjöri tryggingafélaga er brot í tímaröðum um iðgjaldakröfur og iðgjaldaskuld í janúar 2023.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi tryggingafélaga í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is