Heildareignir vátryggingafélaga námu 349,3 ma.kr. í lok mars. Af heildareignum námu eignir skaðatryggingafélaga 331,1 ma.kr. og eignir líftryggingafélaga 18,2 ma.kr.
Innlendar eignir vátryggingafélaga námu 285,1 ma.kr. og erlendar eignir námu 64,1 ma.kr.
Innlendar skuldir félaganna námu 161,1 ma.kr. en þar af námu vátrygginga- og lífeyrisskuldir 139,3 ma.kr. Erlendar skuldir vátryggingafélaga námu 487 m.kr.
Í lok mars nam eigið fé tryggingafélaga 187,6 ma.kr. og lækkaði um 7,2 ma.kr. á milli mánaða.
Vegna innleiðingar á IFRS 17 reikningsskilastaðli í uppgjöri tryggingafélaga er brot í tímaröðum um iðgjaldakröfur og iðgjaldaskuld í janúar 2023.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi tryggingafélaga í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is