Heildareignir vátryggingafélaga námu 343,7 ma.kr. í lok nóvember. Af heildareignum námu eignir skaðatryggingafélaga 323,3 ma.kr. og eignir líftryggingafélaga 20,4 ma.kr.
Innlendar eignir vátryggingafélaga námu 281,2 ma.kr. og erlendar eignir námu 62,5 ma.kr.
Innlendar skuldir félaganna námu 154,2 ma.kr. en þar af námu vátrygginga- og lífeyrisskuldir 135,6 ma.kr. Erlendar skuldir vátryggingafélaga námu 72 m.kr.
Í lok nóvember nam eigið fé tryggingafélaga 189,4 ma.kr. og hækkaði um 2,4 ma.kr. á milli mánaða.
Vegna innleiðingar á IFRS 17 reikningsskilastaðli í uppgjöri tryggingafélaga er brot í tímaröðum um iðgjaldakröfur og iðgjaldaskuld í janúar 2023.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi tryggingafélaga í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is