Fara beint í Meginmál

Tryggingafélög í október 2025 17. desember 2025

Heildareignir vátryggingafélaga námu 343,0 ma.kr. í lok október. Af heildareignum námu eignir skaðatryggingafélaga 322,8 ma.kr. og eignir líftryggingafélaga 20,1 ma.kr.
Innlendar eignir vátryggingafélaga námu 280,0 ma.kr. og erlendar eignir námu 62,9 ma.kr.

Innlendar skuldir félaganna námu 155,9 ma.kr. en þar af námu vátrygginga- og lífeyrisskuldir 135,9 ma.kr. Erlendar skuldir vátryggingafélaga námu 72 m.kr.

Í lok október nam eigið fé tryggingafélaga 187,0 ma.kr. og hækkaði um 3,3 ma.kr. á milli mánaða.

Vegna innleiðingar á IFRS 17 reikningsskilastaðli í uppgjöri tryggingafélaga er brot í tímaröðum um iðgjaldakröfur og iðgjaldaskuld í janúar 2023.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi tryggingafélaga í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is