Fara beint í Meginmál

Tryggingafélög í september 2025 18. nóvember 2025

Heildareignir vátryggingafélaga námu 338,7 ma.kr. í lok september. Af heildareignum námu eignir skaðatryggingafélaga 318,9 ma.kr. og eignir líftryggingafélaga 19,8 ma.kr.
Innlendar eignir vátryggingafélaga námu 279,0 ma.kr. og erlendar eignir námu 59,7 ma.kr.

Innlendar skuldir félaganna námu 154,9 ma.kr. en þar af námu vátrygginga- og lífeyrisskuldir 134,8 ma.kr. Erlendar skuldir vátryggingafélaga námu 84 m.kr.

Í lok september nam eigið fé tryggingafélaga 183,7 ma.kr. og hækkaði um 2,1 ma.kr. á milli mánaða.

Vegna innleiðingar á IFRS 17 reikningsskilastaðli í uppgjöri tryggingafélaga er brot í tímaröðum um iðgjaldakröfur og iðgjaldaskuld í janúar 2023.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi tryggingafélaga í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is