Fara beint í Meginmál

Uppfærður listi yfir ríki sem teljast áhættusöm og ósamvinnuþýð 9. nóvember 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur uppfært lista á vef Seðlabankans yfir ríki sem teljast áhættusöm og ósamvinnuþýð, sbr. 6. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Á listanum er annars vegar um að ræða ríki sem Alþjóðlegi fjármálaaðgerðahópurinn (e. Financial Action Task Force, FATF) hefur tilgreint sem áhættusöm og eftir atvikum ósamvinnuþýð og hins vegar ríki sem Evrópusambandið hefur tilgreint sem áhættusöm þriðju lönd, sbr. reglugerð nr. 557/2026 um breytingu á reglugerð um áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 105/2020.

Að þessu sinni er um að ræða breytingar á lista Evrópusambandsins yfir áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Sex lönd falla af lista Evrópusambandsins og því falla eftirfarandi lönd af lista yfir ríki sem teljast áhættusöm og ósamvinnuþýð: Búrkína Fasó, Malí, Mósambík, Nígería, Suður-Afríka og Tansanía.

Þá bætist Rússland við lista yfir áhættusöm og ósamvinnuþýð ríki. Á vettvangi Evrópusambandsins er viðurkennt að þriðju lönd sem hafa ekki verið opinberlega tilgreind sem lönd sem falla undir kröfur um aðgerðir eða aukið eftirlit af hálfu FATF geta samt sem áður verið ógn við heilleika fjármálakerfisins, einkum ef aðild slíkra landa að FATF hefur verið ógild um stundarsakir vegna grófra brota á þeim grundvallarreglum sem liggja til grundvallar FATF. Aðild Rússlands að FATF var ógilt um stundarsakir vegna grófra brota gegn grundvallar reglum FATF. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins komst því að þeirri niðurstöðu að Rússland skuli tilgreint sem áhættusamt þriðja land.

Sjá nánar: Seðlabanki Íslands | Áhættusöm og ósamvinnuþýð ríki