Fara beint í Meginmál

Upplýsingar fyrir útgefendur verðbréfa (ESAP) 24. júní 2026

Í tengslum við innleiðingu kerfis um einn evrópskan aðgangsstað (ESAP) vill Seðlabanki Íslands vekja athygli á því að útgefendur tryggi að nauðsynlegar upplýsingar berist fréttaveitum sem þeir reiða sig á.

Til að tryggja hnökralausa innleiðingu og koma í veg fyrir tafir á birtingu lögbundinna fréttatilkynninga þurfa útgefendur að veita tilteknar upplýsingar, t.d. varðandi stærð félags og atvinnugreinaflokkun, fyrir 10. júlí 2026.

Nánari umfjöllun um framangreint er að finna í dreifibréfi Seðlabanka Íslands sem sent hefur verið útgefendum verðbréfa og Kauphöll Íslands.

Sjá nánar: Dreifibréf nr. 22/2026 til útgefenda verðbréfa um væntanlega löggjöf um einn evrópskan aðgangsstað