Heildarfjárhæð verðbréfa (skuldabréfa og víxla) í útboðum í ágúst sl. nam 84,5 ma.kr. á söluverði, samanborið við 100,3 ma.kr. í mánuðinum þar á undan.
Í ágúst námu útboð í formi óverðtryggðra skuldabréfa um 15,3 ma.kr., útboð í formi verðtryggðra skuldabréfa námu 20,4 ma.kr. og útboð í formi víxla námu 48,7 ma.kr.
Sjá nánari sundurliðun á útboðum verðbréfa í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is