Heildarfjárhæð verðbréfa (skuldabréfa og víxla) í útboðum í júlí sl. nam 100,3 ma.kr. á söluverði, samanborið við 76,9 ma.kr. í mánuðinum þar á undan.
Í júlí námu útboð í formi óverðtryggðra skuldabréfa um 13,1 ma.kr., útboð í formi verðtryggðra skuldabréfa námu 21,9 ma.kr. og útboð í formi víxla námu 65,4 ma.kr.
Sjá nánari sundurliðun á útboðum verðbréfa í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is