Fara beint í Meginmál

Útboð verðbréfa í mars 2024 23. apríl 2024

Heildarfjárhæð verðbréfa (skuldabréfa og víxla) í útboðum í mars sl. nam 66,6 ma.kr. á söluverði, samanborið við 79,5 ma.kr. í mánuðinum þar á undan.
Í mars námu útboð í formi óverðtryggðra skuldabréfa um 4,7 ma.kr., útboð í formi verðtryggðra skuldabréfa námu 24,5 ma.kr. og útboð í formi víxla námu 37,3 ma.kr.

Sjá nánari sundurliðun á útboðum verðbréfa í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is