Fara beint í Meginmál

Útboð verðbréfa í mars 2026 17. mars 2026

Heildarfjárhæð verðbréfa (skuldabréfa og víxla) í útboðum í mars sl. nam 120,8 ma.kr. á söluverði, samanborið við 85,3 ma.kr. í mánuðinum þar á undan.

Í mars námu útboð í formi óverðtryggðra skuldabréfa um 27 ma.kr., útboð í formi verðtryggðra skuldabréfa námu 50,6 ma.kr. og útboð í formi víxla námu 43,2 ma.kr.

Sjá nánari sundurliðun á útboðum verðbréfa í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is