Fara beint í Meginmál

Útboð verðbréfa í október 2025 17. nóvember 2025

Heildarfjárhæð verðbréfa (skuldabréfa og víxla) í útboðum í október sl. nam 83,5 
ma.kr. á söluverði, samanborið við 78,4 ma.kr. í mánuðinum þar á undan.

Í október námu útboð í formi óverðtryggðra skuldabréfa um 18,8 ma.kr., útboð í formi verðtryggðra skuldabréfa námu 25,2 ma.kr. og útboð í formi víxla námu 39,5 ma.kr.

Sjá nánari sundurliðun á útboðum verðbréfa í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is