Fara beint í Meginmál

Útboð verðbréfa í september 2024

Heildarfjárhæð verðbréfa (skuldabréfa og víxla) í útboðum í september sl. nam 85,8 ma.kr. á söluverði, samanborið við 84,5 ma.kr. í mánuðinum þar á undan.
Í september námu útboð í formi óverðtryggðra skuldabréfa um 11,8 ma.kr., útboð í formi verðtryggðra skuldabréfa námu 21,6 ma.kr. og útboð í formi víxla námu 52,4 ma.kr.

Sjá nánari sundurliðun á útboðum verðbréfa í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is