Seðlabankinn framkvæmir ársfjórðungslega útlánakönnun meðal viðskiptabankanna fjögurra. Spurt er um mat þeirra á þróun framboðs og eftirspurnar eftir lánsfé, um breytingar á útlánareglum, útlánavöxtum og vaxtaálagi og hvaða þættir hafi haft ráðandi áhrif á þær breytingar á síðustu þremur mánuðum. Einnig er spurt um væntingar viðskiptabankanna um horfur næstu sex mánuði. Könnunin var síðast framkvæmd 1. til 17. apríl sl. og eru niðurstöðurnar hér byggðar á meðaltali svara.
Helstu niðurstöður
Samkvæmt svörum viðskiptabankanna var framboð þeirra á húsnæðislánum til heimila óbreytt á síðustu þremur mánuðum. Hins vegar gera þeir ráð fyrir að framboðið aukist lítillega á næstu sex mánuðum en í mars buðu allir viðskiptabankarnir upp á óverðtryggð lán með breytilegum vöxtum á ný eftir tímabundið hlé á veitingu slíkra lána í kjölfar dóms Hæstaréttar í vaxtamálinu svokallaða í október sl. Þá gera bankarnir ráð fyrir að framboð annarra útlána til heimila haldist óbreytt á tímabilinu.[1] Eftirspurn heimila eftir húsnæðislánum var óbreytt síðustu þrjá mánuði samkvæmt svörum bankanna en þeir búast við að hún dragist lítillega saman á næstu sex mánuðum. Bankarnir greindu frá lítilsháttar samdrætti í eftirspurn eftir bílalánum á síðustu þremur mánuðum og búast við að hún dragist áfram lítillega saman næstu sex mánuði.
Reglur um bílalán til heimila voru rýmkaðar lítillega á síðustu þremur mánuðum samkvæmt svörum viðskiptabankanna vegna aukinnar samkeppni frá öðrum bönkum en þeir gera ráð fyrir að útlánareglur um bílalán haldist óbreyttar á næstu sex mánuðum. Bankarnir svöruðu að reglur um húsnæðislán til heimila hafi verið óbreyttar á síðustu þremur mánuðum en þeir gera ráð fyrir að þær verði rýmkaðar lítillega á næstu sex mánuðum. Þá telja bankarnir að samkeppni um lán til heimila muni aukast á næstu sex mánuðum, bæði við aðra banka og aðra aðila á lánamarkaði.
Vextir og vaxtaálag á verðtryggðum útlánum til heimila voru óbreytt á síðustu þremur mánuðum samkvæmt svörum bankanna. Þeir gera ráð fyrir að vextir og vaxtaálag á verðtryggðum útlánum til heimila haldist óbreytt á næstu sex mánuðum. Vextir á óverðtryggðum útlánum til heimila hækkuðu á síðustu þremur mánuðum samkvæmt könnuninni en vaxtaálag var óbreytt á sama tíma. Hækkun meginvaxta Seðlabanka Íslands var helsti áhrifaþáttur vaxtahækkana en hærri fjármögnunarkostnaður hafði einnig lítilsháttar áhrif til hækkunar. Bankarnir gera ráð fyrir að vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hækki áfram á næstu sex mánuðum samhliða væntingum um hækkun meginvaxta og hærri fjármögnunarkostnað.
Bankarnir greindu frá því að framboð fyrirtækjalána hafi verið óbreytt á síðustu þremur mánuðum og gera þeir ráð fyrir svipaðri þróun á næstu sex mánuðum. Samkvæmt svörum bankanna dró úr eftirspurn fyrirtækja eftir lánsfjármögnun í íslenskum krónum á síðustu þremur mánuðum. Þá gera bankarnir ráð fyrir að eftirspurn fyrirtækja eftir útlánum í íslenskum krónum dragist lítillega saman á næstu sex mánuðum og að eftirspurn minni fyrirtækja eftir lánum í erlendum gjaldmiðlum dragist einnig lítillega saman.
Reglur bankanna um lánveitingar til fyrirtækja voru óbreyttar á síðustu þremur mánuðum samkvæmt könnuninni og gera bankarnir ekki ráð fyrir breytingum á útlánareglum á næstu sex mánuðum. Þá telja þeir að samkeppni um útlán til minni fyrirtækja verði óbreytt næstu sex mánuði en að samkeppni um lán til stærri fyrirtækja aukist lítillega við aðra banka en einnig vegna markaðsfjármögnunar á sama tíma.
Samkvæmt svörum bankanna jókst vaxtaálag lítillega á verðtryggðum útlánum bæði til minni og stærri fyrirtækja á síðustu þremur mánuðum og hafði regluverk þar mest áhrif til hækkunar, vextir voru þó óbreyttir. Vextir á óverðtryggðum útlánum til fyrirtækja hækkuðu á síðustu þremur mánuðum, einna helst vegna hækkunar meginvaxta en einnig vegna hærri fjármögnunarkostnaðar bankanna og breytinga á regluverki. Vaxtaálag var óbreytt. Vextir og vaxtaálag á útlánum í erlendum gjaldmiðlum var óbreytt á sama tíma, bæði hjá minni og stærri fyrirtækjum.
Bankarnir gera ekki ráð fyrir breytingum á vöxtum og vaxtaálagi á verðtryggðum útlánum til fyrirtækja næstu sex mánuði en þeir áætla að vextir á óverðtryggðum útlánum til fyrirtækja hækki samhliða væntingum um hækkun meginvaxta og hærri fjármögnunarkostnað. Gert er ráð fyrir að vaxtaálag haldist óbreytt. Þá gera þeir ráð fyrir að vextir og vaxtaálag á útlánum til stærri fyrirtækja í erlendri mynt hækki lítillega yfir sama tímabil vegna hærri fjármögnunarkostnaðar.
[1] Í könnuninni er útlánum til heimila skipt upp í húsnæðislán, bílalán og önnur lán. Útlánum til fyrirtækja er skipt upp í langtíma- og skammtímalán. Jafnframt er spurt sérstaklega um útlán í erlendum gjaldmiðlum bæði fyrir heimili og fyrirtæki.