Seðlabankinn framkvæmir ársfjórðungslega útlánakönnun meðal viðskiptabankanna fjögurra. Spurt er um mat þeirra á þróun framboðs og eftirspurnar eftir lánsfé, um breytingar á útlánareglum, útlánavöxtum og vaxtaálagi og hvaða þættir hafi haft ráðandi áhrif á þær breytingar á síðustu þremur mánuðum. Einnig er spurt um væntingar viðskiptabankanna um horfur næstu sex mánuði. Könnunin var framkvæmd 1.-14. þessa mánaðar og byggjast niðurstöðurnar á meðaltali svara.
Helstu niðurstöður
Samkvæmt svörum viðskiptabankanna var framboð þeirra á lánum til heimila óbreytt á síðustu þremur mánuðum en þeir gera ráð fyrir lítils háttar aukningu á framboði húsnæðislána næstu sex mánuði. [1] Eftirspurn heimila eftir húsnæðislánum dróst lítillega saman á síðustu þremur mánuðum samkvæmt svörum bankanna en aftur á móti gera þeir ráð fyrir að hún aukist á næstu sex mánuðum. Framboð og eftirspurn heimila eftir öðrum útlánum voru óbreytt á síðustu þremur mánuðum og búast bankarnir við óbreyttri stöðu á næstu sex mánuðum.
Reglur um útlán til heimila voru óbreyttar á síðustu þremur mánuðum samkvæmt svörum viðskiptabankanna og gera þeir ráð fyrir að reglurnar verði áfram óbreyttar á næstu sex mánuðum. Þá telja bankarnir að samkeppni við aðra aðila á lánamarkaði um útlán til heimila muni aukast lítillega á næstu sex mánuðum.
Vextir og vaxtaálag á verðtryggðum útlánum til heimila voru óbreytt á síðustu þremur mánuðum samkvæmt svörum bankanna en þeir gera ráð fyrir að hvort tveggja hækki á næstu sex mánuðum. Hækkunina má m.a. rekja til fyrirhugaðrar hækkunar bankaskatts og væntinga um að verðbólga lækki hraðar en meginvextir Seðlabanka Íslands. Vextir á óverðtryggðum útlánum til heimila hækkuðu á síðustu þremur mánuðum samkvæmt könnuninni vegna hækkunar meginvaxta en vaxtaálag lækkaði lítillega á sama tíma. Bankarnir gera ráð fyrir að vextir og vaxtaálag á óverðtryggðum íbúðalánum hækki lítillega á næstu sex mánuðum vegna væntinga um hækkun bankaskatts.
Bankarnir greindu frá því að framboð fyrirtækjalána hefði verið óbreytt á síðustu þremur mánuðum og gera þeir ráð fyrir óbreyttri þróun á næstu sex mánuðum. Samkvæmt svörum bankanna dróst eftirspurn fyrirtækja eftir lánsfjármagni til lengri tíma lítillega saman á síðustu þremur mánuðum, bæði meðal minni og stærri fyrirtækja. Lánsfjáreftirspurn til skemmri tíma meðal minni fyrirtækja var óbreytt en jókst lítillega meðal stærri fyrirtækja eftir útlánum í erlendri mynt. Bankarnir gera ráð fyrir að eftirspurn minni fyrirtækja dragist áfram saman á næstu sex mánuðum en að eftirspurn stærri fyrirtækja eftir lánsfé í erlendri mynt haldi áfram að aukast á sama tíma.
Reglur bankanna um lánveitingar til fyrirtækja voru heilt yfir óbreyttar á síðustu þremur mánuðum samkvæmt könnuninni en tekið er fram að staða og horfur einstakra fyrirtækja eða atvinnugreina og áhætta tengd veðandlagi hafi valdið þrengingum útlánareglna vegna lánveitinga til stærri fyrirtækja, bæði í langtíma- og skammtímafjármögnun. Bankarnir gera ekki ráð fyrir breytingum á útlánareglum á næstu sex mánuðum. Þá telja þeir að samkeppni við aðra aðila á lánamarkaði um útlán til minni fyrirtækja aukist lítillega á næstu sex mánuðum.
Samkvæmt svörum bankanna voru vextir á verðtryggðum útlánum til minni fyrirtækja óbreyttir á síðustu þremur mánuðum en hækkuðu lítillega á útlánum til stærri fyrirtækja. Gert er ráð fyrir að bæði vextir og vaxtaálag á verðtryggðum útlánum til stærri og minni fyrirtækja hækki á næstu sex mánuðum vegna væntinga um hækkun bankaskatts og að verðbólga lækki hraðar en meginvextir. Á móti vega væntingar um lækkun fjármagnskostnaðar.
Þá hækkuðu vextir á óverðtryggðum lánum til fyrirtækja á sama tíma einkum vegna hækkunar meginvaxta en einnig vegna hærri fjármögnunarkostnaðar. Gert er ráð fyrir að vextir og vaxtaálag á óverðtryggðum lánum til minni fyrirtækja hækki lítillega á næstu sex mánuðum vegna væntinga um hækkun bankaskatts. Bankarnir gera ráð fyrir að slíkir vextir til stærri fyrirtækja verði óbreyttir á sama tíma.
Vextir og vaxtaálag á útlánum til fyrirtækja í erlendum gjaldmiðlum voru óbreyttir á síðustu þremur mánuðum samkvæmt könnuninni en bankarnir gera ráð fyrir lítils háttar hækkun á næstu sex mánuðum vegna væntinga um hækkun bankaskatts. Á móti vega væntingar um lægri fjármögnunarkostnað.
Sjá nánar: Útlánakönnun (sérstök síða fyrir efnið)
Sjá niðurstöður nýjustu könnunarinnar hér: Útlánakönnun Seðlabanka Íslands 23. október 2026.
[1] Í könnuninni er útlánum til heimila skipt upp í húsnæðislán, bílalán og önnur lán. Útlánum til fyrirtækja er skipt upp í langtíma- og skammtímalán. Jafnframt er spurt sérstaklega um útlán í erlendum gjaldmiðlum bæði fyrir heimili og fyrirtæki.