Seðlabankinn framkvæmir ársfjórðungslega útlánakönnun meðal viðskiptabankanna fjögurra. Spurt er um mat þeirra á þróun framboðs og eftirspurnar eftir lánsfé, um breytingar á útlánareglum, útlánavöxtum og vaxtaálagi og hvaða þættir hafi haft ráðandi áhrif á þær breytingar á síðustu þremur mánuðum. Einnig er spurt um væntingar viðskiptabankanna um horfur næstu sex mánuði. Könnunin var framkvæmd 1. júlí til 14. ágúst sl. og eru niðurstöðurnar hér byggðar á meðaltali svara.
Helstu niðurstöður
Samkvæmt svörum viðskiptabankanna jókst framboð þeirra á húsnæðislánum til heimila lítillega á síðustu þremur mánuðum og gera þeir ráð fyrir lítils háttar aukningu á framboði næstu sex mánuði. Bankarnir gera ráð fyrir að framboð annarra útlána til heimila haldist óbreytt á tímabilinu. (1) Eftirspurn eftir bílalánum jókst lítillega á síðustu þremur mánuðum samkvæmt svörum bankanna en aftur á móti gera þeir ráð fyrir að hún dragist aðeins saman á næstu sex mánuðum. Eftirspurn heimila eftir öðrum útlánum var óbreytt á síðustu þremur mánuðum og búast bankarnir við að hún verði áfram óbreytt á næstu sex mánuðum.
Reglur um húsnæðislán til heimila voru rýmkaðar lítillega á síðustu þremur mánuðum samkvæmt svörum viðskiptabankanna en reglur um önnur útlán til heimila voru óbreyttar. Bankarnir gera ráð fyrir að reglur um útlán til heimila verði óbreyttar á næstu sex mánuðum. Þá telja bankarnir að samkeppni við aðra aðila á lánamarkaði um útlán til heimila muni aukast á næstu sex mánuðum.
Vextir og vaxtaálag á verðtryggðum útlánum til heimila voru óbreytt á síðustu þremur mánuðum samkvæmt svörum bankanna en þeir gera ráð fyrir að vextir verðtryggðra lána hækki á næstu sex mánuðum vegna hækkunar meginvaxta Seðlabanka Íslands. Vextir á óverðtryggðum útlánum til heimila hækkuðu á síðustu þremur mánuðum samkvæmt könnuninni vegna hækkunar meginvaxta en vaxtaálag lækkaði á sama tíma. Bankarnir gera ráð fyrir að vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hækki áfram á næstu sex mánuðum samhliða væntingum um hækkun meginvaxta og hærri fjármögnunarkostnað.
Bankarnir greindu frá því að framboð fyrirtækjalána hafi verið óbreytt á síðustu þremur mánuðum og gera þeir ráð fyrir óbreyttri þróun á næstu sex mánuðum. Samkvæmt svörum bankanna var eftirspurn fyrirtækja eftir lánsfjármagni einnig óbreytt á síðustu þremur mánuðum. Þá gera bankarnir ráð fyrir að eftirspurn stærri fyrirtækja verði óbreytt áfram á næstu sex mánuðum en að eftirspurn minni fyrirtækja dragist lítillega saman.
Reglur bankanna um lánveitingar til fyrirtækja voru óbreyttar á síðustu þremur mánuðum samkvæmt könnuninni en tekið er fram að staða og horfur einstakra fyrirtækja eða atvinnugreina og áhætta tengd veðandlagi hafi haft áhrif á lánveitingar til stærri fyrirtækja, bæði í langtíma- og skammtímafjármögnun. Bankarnir gera ekki ráð fyrir breytingum á útlánareglum á næstu sex mánuðum. Þá telja þeir að samkeppni um útlán til fyrirtækja verði óbreytt næstu sex mánuði.
Samkvæmt svörum bankanna jókst vaxtaálag á útlánum til fyrirtækja í íslenskum krónum á síðustu þremur mánuðum. Þá hækkuðu vextir á óverðtryggðum lánum til fyrirtækja á sama tíma einkum vegna hækkunar meginvaxta en einnig vegna hærri fjármögnunarkostnaðar. Vextir verðtryggðra lána voru óbreyttir. Vextir og vaxtaálag á fyrirtækjalán í erlendum gjaldmiðlum lækkuðu hins vegar á sama tíma vegna lægri fjármögnunarkostnaðar.
Bankarnir gera ráð fyrir að vextir á fyrirtækjalánum í íslenskum krónum hækki á næstu sex mánuðum, sér í lagi vextir á óverðtryggðum útlánum. Samkvæmt svörum bankana er það fyrst og fremst vegna væntinga um hækkun meginvaxta en einnig hærri fjármögnunarkostnað. Breytingar í regluverki vega þó lítillega á móti. Þá gera þeir ráð fyrir að vaxtaálag á óverðtryggð útlán til stærri fyrirtækja hækki á sama tíma. Gert er ráð fyrir að vextir og vaxtaálag á útlán til stærri fyrirtækja í erlendum gjaldmiðlum lækki á næstu sex mánuðum vegna væntinga um lægri fjármögnunarkostnað.
Sjá nánar:
Útlánakönnun (sérstök síða fyrir efnið)
Sjá niðurstöður könnunarinnar hér: Útlánakönnun Seðlabanka Íslands 26. ágúst 2026.
(1) Í könnuninni er útlánum til heimila skipt upp í húsnæðislán, bílalán og önnur lán. Útlánum til fyrirtækja er skipt upp í langtíma- og skammtímalán. Jafnframt er spurt sérstaklega um útlán í erlendum gjaldmiðlum bæði fyrir heimili og fyrirtæki.