Sterk staða lántaka og lánveitenda gerir aðlögun á fasteignamarkaði kostnaðarminni fyrir samfélagið en ella
Í lok október rýmkaði Seðlabankinn lánþegaskilyrðin með því að hækka veðsetningarhlutfall fyrir kaupendur fyrstu fasteignar úr 85% í 90% og auka svigrúm til að veita undanþágu frá greiðslubyrðarhlutfalli úr 5 í 10%. Færri tekjulágir fyrstu kaupendur eru nú með hátt greiðslubyrðarhlutfall og gögn benda til þess að fyrstu kaupendur komist áfram inn á fasteignamarkaðinn.
Í erindi Tómasar kom fram að mikil fólksfjölgun hefði átt verulegan þátt í hækkun húsnæðisverðs undanfarin ár og að gosóróinn við Grindavík hefði haft mikil áhrif árið 2024. Dýpri hagrænir kraftar bendi þó ekki til vaxandi eftirspurnar um þessar mundir, ekki síst hærri raunvextir og hægari fólksfjölgun. Þá sagði Tómas að mikið framboð og langur birgðatími nýbygginga sé áhyggjuefni.