Fara beint í Meginmál

Varaseðlabankastjóri með erindi um fjármálastöðugleika á alþjóðlegri ráðstefnu 29. maí 2026

Tómas Brynjólfsson varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika flutti erindi á alþjóðlegri ráðstefnu í Hörpu sem Seðlabanki Íslands stóð fyrir í samstarfi við The Center for International Macroeconomics við Northwestern-háskóla í Illinois.

Í erindinu, sem var hluti af pallborðsumræðum undir yfirskriftinni „Financial stability: The big leap or a bubble?“, fjallaði Tómas um hvernig reynsla Íslands eftir fjármálakreppuna varpar ljósi á hvort áhætta í fjármálakerfinu hafi raunverulega minnkað eða hvort hún hafi að hluta færst á milli aðila innan hagkerfisins. Hann ræddi hvernig umbætur á regluverki og umgjörð fjármálaeftirlits hafi stuðlað að auknum  viðnámsþrótti fjármálakerfisins án þess að draga úr hagvexti.

Hann fjallaði um hvernig umfangsmikil niðurgreiðsla skulda, sterk eiginfjár- og lausafjárstaða banka og aðhaldssöm þjóðhagsvarúðarstefna hafi stuðlað að auknum stöðugleika í íslenska fjármálakerfinu eftir fjármálakreppuna. Hann benti einnig á að áhætta geti færst til, meðal annars yfir á lífeyrissjóði og hið opinbera, og að því sé mikilvægt að viðhalda öflugum viðnámsþrótti fjármálakerfisins þrátt fyrir umræður um einfaldara regluverk.