Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu hélt erindi í dag á fundi Félags atvinnurekanda um peningastefnu við aðstæður óvissu og þrálátrar verðbólgu.
Þar fjallaði Þórarinn um stöðu og horfur í efnahagsmálum, bæði hér á landi og erlendis. Hann ræddi meðal annars um mikla óvissu í alþjóðlegum efnahagsmálum og hægari efnahagsumsvif hér á landi, sem meðal annars sjást á vinnu- og húsnæðismarkaði. Þá fjallaði hann um þráláta verðbólgu, sem hefur fyrst og fremst verið drifin áfram af innlendum þáttum, og verðbólguvæntingar sem eru enn of háar. Þótt gert sé ráð fyrir að verðbólga hjaðni tiltölulega hratt á næsta ári er óvissa um horfurnar töluverð.
Þórarinn fjallaði einnig um að þörf sé á meira peningalegu aðhaldi hér á landi en í nágrannaríkjunum, meðal annars vegna þess að verðbólga hefur reynst þrálátari og kjölfesta verðbólguvæntinga veikari hér á landi.