Fara beint í Meginmál

Varaseðlabankastjóri peningastefnu með erindi fyrir MBA-nemendur við Háskóla Íslands 6. nóvember 2026

Þórarinn G. Pétursson
Þórarinn G. Pétursson

Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu hélt erindi í dag fyrir MBA-nemendur við Háskóla Íslands um peningastefnuna á umbrotatímum.

Í erindinu greindi Þórarinn frá stöðu og horfum í innlendum efnahagsmálum ásamt því hvernig peningastefnan bregst við olíukreppunni. Að lokum fjallaði hann um peningastefnuna á breiðum grunni, m.a. um markmið hennar og hvernig ákvarðanir eru teknar.