Fara beint í Meginmál

Varaseðlabankastjóri peningastefnu með erindi um gjaldmiðla á alþjóðlegri ráðstefnu 1. júní 2026

Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu flutti erindi á alþjóðlegri ráðstefnu í Hörpu sem Seðlabanki Íslands stóð fyrir í samstarfi við The Center for International Macroeconomics við Northwestern-háskóla í Illinois.

Í erindinu sem bar yfirskriftina „Currencies: Buffers or amplifiers of shocks – The ISK‘s journey from a source of shocks to a shock absorber“ ræddi Þórarinn um það hvernig sveigjanlegt gengi getur stundum hjálpað við aðlögun þjóðarbúsins að efnahagsáföllum en geti einnig stundum verið uppspretta efnahagslegs óstöðugleika.

Rakti hann hvernig sveiflur í gengi krónunnar voru meira til þess fallnar að ýkja hagsveiflur fram að fjármálakreppunni fyrir tæplega tuttugu árum en að vísbendingar væru um að eðli gengissveiflna hafi breyst eftir fjármálakreppuna. Þannig hafi sveigjanleiki krónunnar t.d. leikið mikilvægt hlutverki í aðlögun þjóðarbúsins að hröðum vexti í ferðaþjónustu um miðjan síðasta áratug og í heimsfaraldrinum í byrjun þessa áratugar. Gengi krónunnar virðist því virka betur sem sveiflujöfnunartæki eftir fjármálakreppuna sem hann rakti til betra ytra jafnvægis þjóðarbúsins, minni gjaldeyrisáhættu á efnahagsreikningi þjóðarbúsins en ekki síður til bættrar umgjarðar hagstjórnar og aukins trúverðugleika efnahagsstefnunnar.