Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu, og Karen Áslaug Vignisdóttir, aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu í Seðlabanka Íslands, sóttu nýverið fundi hjá fimm fjármálafyrirtækjum, þ.e. Landsbankanum, Íslandsbanka, Arion banka, Kviku banka og Arctica Finance. Karen kynnti efni nýútgefinna Peningamála 2026/3 og Þórarinn fjallaði um og svaraði spurningum varðandi yfirlýsingu peningastefnunefndar og nýlega vaxtaákvörðun.
Sjá hér fyrir neðan tengil í skjal með efni sem aðalhagfræðingur kynnti á fundunum.