Fjármálaeftirliti Seðlabankans berast nú tilkynningar um tölvupóst þar sem eftirlitið er ranglega titlað sem sendandi. Í þeim kemur fram að hægt sé að smella á tiltekinn hlekk og fá þá háar fjárhæðir endurgreiddar.
Við viljum vekja athygli á því að póstarnir eru ekki frá Seðlabanka Íslands og viljum vara fólk við að svara skilaboðunum eða ýta á hlekk í svikapóstinum. Mikilvægt er að skoða öll skilaboð og allan póst með gagnrýnum augum, ekki smella á hlekki eða viðhengi nema að vel athuguðu máli og alls ekki gefa upp kortaupplýsingar eða viðkvæmar persónuupplýsingar.
Við vekjum athygli á góðri fræðslu á heimasíðu CERT-IS um vefveiðar sem þessar: Vefveiðar (cert.is)
Í meðfylgjandi mynd er dæmi um svikapóst.