Yfirlýsing peningastefnunefndar verður birt á vef Seðlabanka Íslands á morgun, miðvikudaginn 20. maí 2026, kl. 8:30. Peningamál verða birt kl. 8:35 og vefútsending hefst svo klukkan 9:30 þar sem gerð verður grein fyrir yfirlýsingu nefndarinnar og efni Peningamála á fréttamannafundi með fulltrúum fjölmiðla og fjármálafyrirtækja.
Þar munu Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu og Karen Áslaug Vignisdóttir, aðalhagfræðingur Seðlabankans og framkvæmdastóri sviðs hagfræði og peningastefnu, gera grein fyrir yfirlýsingu peningastefnunefndar og efni Peningamála.
Hér eru nánari upplýsingar um peningastefnu: Peningastefna.
Seðlabankinn ábyrgist ekki hnökralausa vefútsendingu.