Fara beint í Meginmál

Vefútsending vegna yfirlýsingar peningastefnunefndar og útgáfu Peningamála, í dag, miðvikudaginn 4. febrúar 2026 4. febrúar 2026

Yfirlýsing peningastefnunefndar verður birt á vef Seðlabanka Íslands í dag, miðvikudaginn 4. febrúar 2026, kl. 8:30. Ritið Peningamál verður birt á vefnum kl. 8:35. Vefútsending hefst svo klukkan 9:30 þar sem gerð verður grein fyrir yfirlýsingu nefndarinnar á fréttamannafundi með fulltrúum fjölmiðla og fjármálafyrirtækja.

Þar munu Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu og Karen Áslaug Vignisdóttir, aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði- og peningastefnu gera grein fyrir yfirlýsingu peningastefnunefndar og kynna efni Peningamála.

Hér eru nánari upplýsingar um peningastefnu: Peningastefna.

Hér má finna tengla í útgefin rit, m.a. Peningamál: Rit og skýrslur.

Seðlabankinn ábyrgist ekki hnökralausa vefútsendingu.