Eignir verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða námu 1.433,6 ma.kr. í desember og hækkuðu um 8,4 ma.kr. milli mánaða. Eignir verðbréfasjóða námu 170,7 ma.kr. og lækkuðu um 1,0 ma.kr., eignir fjárfestingarsjóða námu 573,9 ma.kr. og hækkuðu um 4,8 ma.kr. og eignir fagfjárfestasjóða námu 689,0 ma.kr. og hækkuðu um 4,7 ma.kr.
Fjöldi sjóða í lok desember var 257 sem skiptist í 38 verðbréfasjóði, 78 fjárfestingarsjóði og 141 fagfjárfestasjóði.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is