Fara beint í Meginmál

Verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóðir í febrúar 2026 27. mars 2026

Eignir verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða námu 1.475,3  ma.kr. í febrúar og hækkuðu um 11,8 ma.kr. milli mánaða. Eignir verðbréfasjóða námu 173,7 ma.kr. og lækkuðu um 0,3 ma.kr., eignir fjárfestingarsjóða námu 603,0 ma.kr. og hækkuðu um 11,5 ma.kr. og eignir fagfjárfestasjóða námu 698,6 ma.kr. og hækkuðu um 0,6 ma.kr.

Fjöldi sjóða í lok febrúar var 262 sem skiptist í 38 verðbréfasjóði, 78 fjárfestingarsjóði og 146 fagfjárfestasjóði.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is