Eignir verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða námu 1.230,3 ma.kr. í janúar og hækkuðu um 44,5 ma.kr. milli mánaða. Eignir verðbréfasjóða námu 155,0 ma.kr. og hækkuðu um 1,2 ma.kr., eignir fjárfestingarsjóða námu 504,9 ma.kr. og hækkuðu um 27,6 ma.kr. og eignir fagfjárfestasjóða námu 570,4 ma.kr. og hækkuðu um 15,7 ma.kr.
Fjöldi sjóða í lok janúar var 241 sem skiptist í 38 verðbréfasjóði, 75 fjárfestingarsjóði og 128 fagfjárfestasjóði.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is