Fara beint í Meginmál

Verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóðir í júlí 2024

Eignir verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða námu 1.269,7 ma.kr. í júlí og lækkuðu um 0,7 ma.kr. milli mánaða. Eignir verðbréfasjóða námu 152,0 ma.kr. og lækkuðu um 1,2 ma.kr., eignir fjárfestingarsjóða námu 499,5 ma.kr. og lækkuðu um 0,6 ma.kr. og eignir fagfjárfestasjóða námu 618,3 ma.kr. og hækkuðu um 1,1 ma.kr.

Fjöldi sjóða í lok júlí var 240 sem skiptist í 37 verðbréfasjóði, 77 fjárfestingarsjóði og 126 fagfjárfestasjóði.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is