Fara beint í Meginmál

Verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóðir í júní 2024

Eignir verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða námu 1.244,3 ma.kr. í júní og hækkuðu um 9,5 ma.kr. milli mánaða. Eignir verðbréfasjóða námu 153,2 ma.kr. og lækkuðu um 1,8 ma.kr., eignir fjárfestingarsjóða námu 500 ma.kr. og hækkuðu um 7,8 ma.kr. og eignir fagfjárfestasjóða námu 591 ma.kr. og hækkuðu um 3,6 ma.kr.

Fjöldi sjóða í lok júní var 239 sem skiptist í 38 verðbréfasjóði, 77 fjárfestingarsjóði og 124 fagfjárfestasjóði.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is